Damn you facebook!


Það er svo langt síðan að ég bloggaði að ég kann ekki lengur á þessa síðu. Shit.


Annars var ég á tímabili með galsa í vinnunni í dag...á milli þess sem ég var ofurþreytt eða ofurbusy. Fékk til dæmis tölvupóst sem endaði á orðunum "kveikir það á einhverju hjá ykkur?". Í galsanum mínum var ég næstum búin að svara "Nei, en það kveikir í mér". Það hefði sennilega ekki verið viðeigandi svar :)


Góð saga? Ekkert sérstaklega, en hún rauf samt langa bloggþögn. Ég held að facebook fíkn mín sé valdur þessarar þagnar, enda ræð ég ekkert við hana þessa dagana. Hvorki hana né heiftarlega ævintýraþrá, frestunaráráttu og þörf til að gera allt og vera alls staðar.


Hið síðastnefna er by the way sjúkdómur. Helst myndi ég vilja skipta sjálfri mér í 10 hluta til að ég nái nú örugglega að upplifa allt í heiminum, en það er víst ekki í boði. Stundum langar mig líka til að fokka öllu upp í kringum mig bara til að leysa úr því, því það er klárlega meira spennandi en einfalt, daglegt líf. Pínu sick?


Anna - æst í ævintýri

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Tue, 1 Jul 2008 23:34

...


Af hverju vissi ég ekki fyrr en áðan að það væri megrunarlausi dagurinn í dag?! Ég hefði getað verið búin að borða endalaust í allan dag, samviskubitslaust. Crap.


Einhvern veginn finnst mér eins og ég hafi skrifað nákvæmlega sama pistil í fyrra á þessum degi - held að ég verði að merkja þetta í calender hjá mér fyrir næsta ár.


Annars tók ég þetta kannski bara út í gær þegar ég fékk mér bjór og Babybel osta í kvöldmatinn í staðinn fyrir að fara út í göngutúr í gordjöss veðrinu sem kom skyndilega.


Síðan erum við nú þrjú í kotinu þessa dagana - nýr sambýlingur (Ari) fluttur inn og gamli sambýlingurinn (Sigga) enn á svæðinu. Það er mjööög cosy :) Fékk meira að segja skutl í vinnuna í gærmorgun frá nýja sambýlingnum, þar sem vinnan mín er næstum í leiðinni. Bíð spennt eftir því að vinnufélagarnir taki eftir mér komandi í vinnuna í fylgd karlmanns á morgnana.


Eitthvað fleira...? Hmm...njahh held ekki. Er ekkert sérstaklega frjó þessa dagana.

Anna - of tóm til að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Tue, 6 May 2008 18:06

Sumardagurinn fyrsti nálgast :)


Hvað er betra en að bjóða sumarið velkomið annað kvöld með frozen margaritas og Sólarsömbu?! Ansi fátt held ég...


Anna - bíður spennt eftir sumrinu :D

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Tue, 22 Apr 2008 17:41

Í leit minni að nýrri íbúð til að búa í fer maður að velta ýmsu fyrir sér. T.d. hvernig maður lookar á internetinu ef maður er googlaður.


Ég myndi nefnilega pottþétt googla tilvonandi leigendur mína! Ég er ekki viss um að þetta auma blogg mitt láti mig líta neitt svakalega vel út. Eintómar fylleríissögur og læti. Ég fékk þá flugu í höfuðið að læsa kannski bara blogginu mínu á meðan íbúðarleitinni stendur...bara svona just in case ;)

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Mon, 14 Apr 2008 19:34

Smáauglýsingar


Djöfull er ég að raka inn pick-up línunum þessa dagana! Ekki nóg með að 10 ára krakki kalli "flottur rass" á eftir mér (sjá síðustu bloggfærslu), heldur fékk ég línuna "róleg á því að vera ríðuleg á kantinum" áðan. Fallegt. Reyndar frá gaur sem var væntanlega útúrkókaður...en samt. Hlýtur að teljast afrek á mánudagskvöldi.


Annars auglýsi ég hér með eftir eftirfarandi:

- Nýjum sambýling/sambýlingum :( Sigríði Fanney bauðst flott starf á Egilsstöðum sem hún þáði og mun því flytjast á brott með vorinu. Ó vei mér! (Samt til hamingju Sigga, ég samgleðst). Það verður mjög erfitt að keppast við Sigríði í sambýlingakeppninni þar sem nýr sambýlingur/sambýlingar munu þurfa vera til í naked mornings, óhóflega áfengisdrykkju, mjög chillaða sunnudaga þar sem ég mun að öllum líkindum ekki nenna að fara í siðsamleg föt, hún/hann/þau/þær/þeir þurfa að hlusta á vinnusögur (sem eru ekki alltaf spennandi) og ekki dæma mig fyrir ógeðs óholla matinn sem ég neyti. Þetta er erfitt verk.

- Skemmtilegum förunaut á Tónsnillinga á morgun þar sem ég varð mér úti um miða á í dag. Anyone? Þeir fáu sem ég minntist á þetta við í dag dissuðu þetta svo mikið að ég þori varla að spyrja neina aðra *hóstlindaogsigga*.

- BA ritgerð. Ég nenni ekki að skrifa hana sjálf.

- Vitinu hennar Siggu. Hvað er hún að pæla að flytja austur og skilja mig eftir hér?! Og sundra Silent Duck?! Gerir hún sér enga grein fyrir því hvaða afleiðingar þetta getur haft?


Þetta er nóg í bili...you know where to reach me.

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Mon, 7 Apr 2008 23:39

...


Ojj...það kallaði 10 ára krakki "flottur rass!" á eftir mér áðan. Það er creepy.


Ég ætti kannski að vera þakklát fyrir að hann kallaði ekki "feitur rass"...kids are cruel.


Þetta eru föstudagskvölds-vangaveltur sem ég rita í staðinn fyrir að taka mig til fyrir Copy Paste hitting - enda er það u.þ.b. það leiðinlegasta sem ég geri! Þ.e. að taka mig til, Copy Paste hittingar eru ALLTAF skemmtilegir :) Skellti Palla á fóninn til að koma mér í gírinn, vonum að hann komi mér í gegnum þessa raun.

 

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Fri, 4 Apr 2008 20:50

Mar er hot!

Það er eins gott að ég geng í fötum allan daginn. Ef að fólk sæi mig án fata myndi það klárlega halda að Sigríður beitti mig heimilisofbeldi þar sem ég er öll þakin misstórum marblettum! Fallegt er það...


Aðallega eru þeir síðan ég stundaði ofsaakstur á 18 ára gamla Stigasleðanum mínum í snævi þöktum brekkum um síðustu helgi og lenti í nokkrum slysum, en einnig ofmat hæfileika mína á bretti og uppskar því byltur. Þá má líka enn finna ummerki þess þegar ég hrundi niður stiga einn á stað kenndum við töluna 11 um þarsíðustu helgi. Hver segir svo að ég sé ekki fín frú! Kvenleikinn er alveg að drepa mig stundum...


Annars á ég rosalega erfitt með að ákveða hvað var skemmtilegast við páskafríið mitt. Var það þegar ég tók meðvitaða ákvörðun um að mæta í fjölskylduboð íklædd kjól sem hæglega gæti verið óléttukjóll, og reyna þar með að koma af stað sögusögnum í föðurfjölskyldunni? Það gekk nú bara nokkuð vel meira að segja! Var það að hitta Alís í fyrsta skipti, sem er klárlega fyndnasta og skemmtilegasta 4 mánaða barn sem ég hef fyrirhitt? Eða var það útivistardagurinn, fjölskyldu- og vinahittingarnir, átið, afslappið og gleðilegu sms sem ég fékk?


Veit það ekki...


Er annars einhver sem er ekki búinn að fara á Kommúnuna? Það eru víst síðustu sýningar og ég á enn eftir að fara!

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Thu, 27 Mar 2008 22:54

...


Góð helgi er að baki. Góður matur, gott fólk, góðar stundir.


Á dagskrá var meðal annars vinnutjútt á föstudagskvöldi, hippapartý á laugardegi og skírn á sunnudegi. Skírn sem ég var by the way ótrúlega fersk í, þrátt fyrir að hafa átt von á öðru! Óvænt ánægja...


Ég ákvað að gefa sjálfri mér hippanafnið "Tight" áður en ég fór í partýið vegna þess að öll hippafötin sem ég fór í voru síðan í menntaskóla... Reyndar eignaðist ég líka ghetto nafn í dag, "Hyper Squirrel" sökum ofvirkni minnar þegar ég neyti spíttólíns og koffeins á sama tíma.


Annars gerði ég skemmtilega uppgötvun í dag. Ég mætti í pilsi í vinnuna, sem gerist nú ekki oft. Þegar ég var að labba yfir götuna (á stað þar sem ég þarf yfirleitt að bíða færis og hlaupa síðan yfir í von og ótta um að ekki verði keyrt yfir mig) þá keyrði ekki einn bíll framhjá mér heldur stoppuðu allir um leið! I felt like such a lady! Samt dáldið spes...


Það er kannski ágætt að mér fannst ég svona kvenleg í morgn vegna þess að ég fékk að heyra þá sögu seinna um daginn að Telma hafi haldið að ég væri einhver creepy gaur þar sem ég stóð við hliðina á henni og dansaði á Ellefunni um helgina. Það endaði á því að hún hvíslaði að Thelmu "hver er þetta eiginlega?!" Það var s.s. þegar ég mætti þangað í hippabúningnum mínum...og hún þekkti mig ekki fyrr en ég tók niður gleraugun. Fallegt!

 

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Mon, 10 Mar 2008 20:12

Föstudagsmiðvikudagur

Ég hef sjaldan upplifað annan eins föstudag og í dag! Verst að það er bara miðvikudagur...


Var með galsa í vinnunni í allan dag (eftir að ég fékk mitt rótsterka kaffi) og það lá við að ég skríkti af kátínu. Langaði líka pínu til að valhoppa annað slagið.


Það er ekkert sérstakt sem veldur þessari undarlegu hegðun - það er hið furðulega. Ég kenni spírólíninu um, en ég er nýbyrjuð að innbyrða það - aðallega vegna þess að mér var sagt að það væri þynnkubani. Það var hinsvegar endurskírt "spíttólín" áðan vegna þessara undarlegu áhrifa sem það hefur á mig. Núna er ég t.d. yfirleitt málóð og eldrauð í framan af hita. S.s. meira en vanalega.


Eftir vinnu kíkti ég í Amokkabjór vegna þess að það var svo mikið vor í lofti, þar var miiiiikið hlegið. Kvöldinu eyddi ég svo í Fiðrildagöngu UNIFEM sem var algjört æði :) Eftir hana settumst við inn í einn bjór og enn meiri hlátursköst!


Í alvörunni...ég hef pínu áhyggjur af sjálfri mér og þessum galsa sem er í mér - er þetta kannski bara vorið? Æ mér er svo sem sama hvort það er vorið, spírólínið, koffínið eða gleðipillurnar sem einhver laumar í matinn minn - ég er sátt við þetta :)


Föstudagsmiðvikudagurinn í hnotskurn: spíttólín og hlátursköst

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Wed, 5 Mar 2008 23:38

Enn meiri skömm!

Guð minn! Það skammarlegasta af öllu saman er að er Alejandro (sem talað er um í færslunni hér að neðan) setti mig á útsölu sem gæludýr! Ég er miður mín...
Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Mon, 3 Mar 2008 20:14

Synd og skömm!

Það er skammarlegt...

...hvað ég nýtti djammlausu helgina mína illa í BA skrif. Hinsvegar ræktaði ég vinarbönd í staðinn sem var rosalega fínt.

...hvað ég kosta lítið sem gæludýr á Facebook - nennir einhver að kaupa mig af Alejandro? (Alejandro er einhver Mexíkóbúi sem ég þekki ekki...)

...að ég skuli ekki lufsast til að byrja að hreyfa mig. Reunion sumarið fer að ganga í garð og ég er ekki ennþá komin in shape!

...að ég fái mér ekki gluggatjöld og klári að taka upp úr kössum.

...að enginn gefi mér heimsreisu að gjöf, bara af því að ég er svo skemmtileg.


Já fussum svei!

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Mon, 3 Mar 2008 20:10

Loksins, loksins...

...loksins er ég komin með net heima!

Þvílíkur léttir, ég get varla líst því :) Ég hef endurheimt hið tvöfalda líf mitt þar sem ég get á ný verið hluti af netheimum.

Snöggt update:

  • Nokkurn veginn búin að koma mér fyrir á Reynimelnum
  • Skrapp til Nottingham að heimsækja Margréti, sá þar Hróa Hött og Nouvelle Vague. Stoppaði aðeins í London og chillaði með Gyðu í góða veðrinu
  • Hef stundað næturlífið eilítið meira en áætlað var, sem meðal annars orsakaði raddleysi í nokkra daga (þó ég kenni að sjálfsögðu hálsbólgunni alfarið um)
  • Lítið hefur farið fyrir BA skrifum

Hmmm...ef frá er talin utanlandsferð þá virðist líf mitt ekkert sérstaklega spennandi þessa dagana...

Helgin sem nú stendur yfir er helguð BA og heilbrigðu líferni. Það versta er að líkt og um leið og klukkan er fjögur á föstudegi þá fer ég í dansgír. Tók nokkur spor í stofunni í gærkvöldi og hristi mig líka pínu þegar ég sit fyrir framan tölvuna í þessum skrifuðu orðum. Það sem verra er þá stóð ég sjálfa mig að því að vera í þvílíkum fíling með ipodinn í eyrunum inni í Nóatúni í morgun! Það var ekkert sérstaklega töff...en hvað á maður að gera þegar Kiss með Prince shufflast allt í einu í eyrun á manni?! Sem betur fer var bara gamalt fólk og helgarpabbar að kaupa bakkelsi í Nóatúni.

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Sat, 1 Mar 2008 11:37

Allt að gerast...


Atburðarrás síðustu daga...

Laugardagur: Skemmti mér konunglega í aldarfjórðungsafmæli Særúnar. Drakk ótæpilega, þar á meðal slatta af tequila sem var kannski ekkert sérstaklega gáfulegt.

Sunnudagur: Vakna við vondan draum þegar ég fæ símtal um að við þyrftum helst að flytja úr Vesturvallagötunni NÚNA! Klósettfaðmlög í bland við íbúðaleit tóku við.

Mánudagur: Skoða þrjár íbúðir, eftir að hafa eytt u.þ.b. 3 mínútum inni í þeirri síðustu leggjumst við Sigríður á hnéin og grátbiðjum um að fá að skrifa undir leigusamning. Fengum vilyrði fyrir því þegar samningurinn yrði tilbúinn. Pakka niður hálfu herberginu mínu.

Þriðjudagur: Vakna eftir mikla martraðanótt. Er í móki í vinnunni, fer síðan og pikka upp lykla að nýja pleisinu á Reynimelnum og kem heim til að halda áfram að pakka.

Útlit næstu daga...

Miðvikudagur: Vinna, pakka og flytja

Fimmtudagur: Vinna, pakka og flytja

Föstudagur: Vinna, klára að flytja, fljúga til Akureyrar

Laugardagur: Sofa, fara á þorrablót

Sunnudagur: Fljúga til Reykjavíkur, taka upp úr kössum

Mánudagsmorgunn: Fljúga til London


Ef einhver er með fetish fyrir því að flytja, bera kassa og erfiða upp stiga þá er algjörlega málið að hafa samband við okkur Sigríði á næstu dögum - við skulum gera okkar besta til að koma til móts við þær þarfir ;)

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Tue, 29 Jan 2008 19:18

Ég var að enda við að horfa á Moulin Rouge. Ein, með sjálfri mér. Sem þýðir basically að ég grenjaði úr mér augun og söng með lögunum þegar ég var ekki með ekka. Úff, ég var eiginlega búin að gleyma hvað þetta er átakanleg mynd!


Þetta ákvað ég að gera fyrst ég hafði mig ekki út úr húsi á bjórkvöld. Ástæðan fyrir því er væntanlega 4 tíma svefninn sem ég fékk síðastliðna nótt. Hitti Kristínu Erlu og Habbý yfir smá rauðvíni um kl. 20 í gærkvöldi og allt í einu var klukkan orðin þrjú um nóttina! Það þýðir að við samkjöftuðum samfleytt í 7 klukkustundir...sem er næstum því heill vinnudagur. Geri aðrir betur :)


Annars áttaði ég mig á því í dag að ég tilheyri ýmiskonar félagslegum "klúbbum" sem bera hin ýmsu nöfn. T.d. er það matarklúbburinn MFF (Matarklúbbur Fallega Fólksins), síðan er það að sjálfsögðu Silent Duck klúbburinn frægi, gönguhópurinn BOB (Bringuhár og Bobbingar), Copy Paste hópurinn, Búlgó Búbbur og síðan kannski einhverjir fleiri sem ég er að gleyma. Fallegt ekki satt?


Þetta er í raun mjög heppilegt flokkunarkerfi og auðveldara að muna heldur en stök nöfn...á örugglega eftir að verða hentugt þegar alzheimer fer að kikka inn hjá manni ;) Ef einhvern langar til að stofna til félagslegs klúbbs með mér, endilega látið mig vita - ég er með nokkrar hugmyndir að nöfnum :)

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Thu, 24 Jan 2008 23:45

Í vikum sem þessari á ég erfitt með að ímynda mér að ég hafi farið í sex vikna áfengisbann í nóvember/desember.


T.d. hefði ég ekki getað fengið mér bjór yfir neinum af þessum handboltaleikjum. Ég hefði ekki heldur getað fengið mér rauðvín og kjaftað með stelpunum í kvöld. Mér hefði liðið asnalega á bjórkvöldi annaðkvöld og ég ætla ekki einu sinni að tala um hvað mér myndi líða asnalega á uppkomandi þorrablóti!


Mikið er ég fegin að vera búin að taka út svona bann once and for all. Jahh eða a.m.k. fyrir næstu árin.

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Wed, 23 Jan 2008 19:55

Ojj!

Ef að þetta er ekki satt og rétt þá veit ég ekki hvað. Sama hvað það var, þá var allt ómögulegt í dag! Úff...


Ég ætla bara að flýta mér að fara að sofa og vakna inn í nýjan og betri dag - thank god að þessi er búinn :)


Annars eru skemmtilegir tímar framundan; 25 ára afmæli um næstu helgi sem ég bind miklar vonir við, þorrablót fyrir norðan helgina þar á eftir og síðan til Englands í viku á mánudeginum eftir það...þvílíkt kæruleysi! Lof it :)

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Mon, 21 Jan 2008 23:28

...

Wow - ég komst inn á bloggið mitt! Mér eiginlega hálfbrá! Að tilefni þess er best að tékka aðeins inn...


Í fyrsta lagi er ég með smá kúlu á enninnu eftir að hafa skallað Gulla (viljandi) inni á Dillon í nótt. Sem betur fer er ég með topp þannig að það sést ekki ;)


Í öðru lagi mætti ég á vinnudag kl. 9 í morgun eftir þriggja tíma svefn og var bara furðu hress! Ég verð samt að viðurkenna að ég er mjög spennt fyrir því að geta sofið alveg út á morgun.


Í þriðja lagi er ég að manna mig upp í að hafa mig aftur af stað í kvöld. Þessi vika er búin að vera svo crazy að mig langar næstum því til að chilla bara heima á laugardagslkvöldi! Öss... :)

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Sat, 19 Jan 2008 19:56

Gaman að þessu...


Ég og ég-eftir-10-ár? Maður spyr sig...

Ég og Erla systir

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Thu, 27 Dec 2007 14:55

Random letiblogg (skrifað til að fresta leiðindaverkum)

Mér finnst ekki gaman að taka til. Mér finnst ekki heldur gaman að pakka niður. En...bæði þarf víst að vera fyrst ég sting af til Akureyrar á morgun. Mér finnst búðarferðir í jólaþvögunni ekki heldur skemmtilegar. 13 gjafir eru reddaðar (aðallega vegna þess að ég á yndislegar systur) en ég á 6 stykki eftir...það reddast ;)


Mest er ég hrædd um að ég gleymi tölvunni minni og öllum heimildum og geti því ekki skrifað ritgerð öll jólin og myndi "neyðast" til að liggja í leti og chilla með fjölskyldu og vinum í staðinn. Ætli undirmeðvitundin mín sé það sterk að hún geti látið það gerast fyrir mig? Ég mæti bara norður grandalaus og fatta ekkert að ég gleymdi öllu sem ég ætlaði að gera um jólin?


Undirmeðvitundin mín er nefnilega freakishly virk held ég. A.m.k. tekst mér yfirleitt að gleyma öllu slæmum, vandræðalegum eða asnalegum hlutum sem ég geri af mér. Það er MJÖG fínt - þangað til einhver minnir mig á þá.


Annars vil ég hér með tilkynna að ég mun sleppa að skrifa jólakort þetta árið og skrifa BA í staðinn. Þannig að enginn fær unaðskort með rauðvínsslettum á frá mér þetta árið...í staðinn mun ég sitja með samviskubit þegar ég opna kortin mín á aðfangadagskvöld.


Ég er að hugsa um að blanda mér Bacardi Razz til að hressa mig við...þá mun ég þjóta í gegnum skúringarnar og niðurpökkunina :) A.m.k. er ég að sofna ofan í sófann núna.


Hmmm...ég vaknaði aðeins við tilhugsunina um Razz - best að dríf'í'essu!

P.S. Eiginlega ætlaði ég ekki að linka inn á þetta...but people have been asking þannig að hér eru gleðimyndir síðustu helgar.
P.P.S. Þrátt fyrir að fólk líti út fyrir að vera ofurölvi, þá var það alls ekki raunin - það var bara svo mikil hamingja í loftinu!
P.P.P.S. Nei - við þekkjum ekki dökkhærða gaurinn með brúnu augun þrátt fyrir að allir aðrir virðist gera það.

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Thu, 20 Dec 2007 20:49

Gleði, gleði, gleði!

Klukkan 16:30 valhoppaði ég af gleði út úr síðasta prófinu mínu í Háskóla Íslands! Laughing Gleði mín var reyndar skammvinn þegar ég áttaði mig á því að enn og aftur var komið rok og mígandi rigning...þannig að í fjórða skipti á jafnmörgum dögum rigndi mig niður. Í þetta skiptið var ég reyndar með vindinn í bakið, sem er mun betra heldur en að vera að berjast á móti honum! Meira að segja vatnsheldi maskarinn minn þoldi ekki álagið síðasta föstudag og lak til.


Þessa dagana er ég líka þakklát fyrir að vera ekki 40 kg og er því steady-as-a-rock í öllum hviðunum. Það hafa samt komið móment þar sem ég hef verið hrædd um að eitthvað fjúki á mig...eins og t.d. tré, heitur pottur eða köttur.


En í dag er ég þakklát - fyrir próflok, vind í bakið og eðlilega líkamsþyngd Smile Í kvöld ætla ég bara að chilla, á morgun ætla ég í vinnuna og síðan á miðvikudagsmorguninn hefst BA maraþonið mikla.


P.S. Ég batt enda á 6 vikna áfengisbann mitt með pompi og prakt um helgina þannig að ég get loks farið að drepa niður orðróma um meinta óléttu mína (eða ef ekki óléttu, þá meðferð) Wink So I'm back in the game!

Anna Friðrika
Said Anna Friðrika
Mon, 17 Dec 2007 17:27

first << prev | Pages : 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 | next >> last